Greining sérfræðings
já nú má segja að ég sé komin með botn í veikindin. Því miður var ekki um vírus eða pink-eye að ræða heldur bólgur aftan við augu. Ég fór til háls- nef- og eyrnalæknis í gær sem vildi senda mig strax í cat scan eða sneiðamyndatöku sem ég fór svo í seinni partinn. Útúr þeim koma að ennis- og kinnbeinsholurnar voru "clear" og ekkert út á það setja. Stuttu seinna kemur einhver læknir svo hlaupandi fram, kynnir sig og segir að ég "will be taken care of".. Hleypur svo inná augnlæknadeild og lætur hringja í augnlækninn sem ég fór til fyrr í vikunni og segir henni að hún verði að koma undir eins. Hleypur svo til baka og segir mér að hún sé á leiðinni. Á tímabili hélt ég að ég væri dauðvona því hann sagði enga ástæðu. Augnlæknirinn kemur svo örugglega beint úr einhverju afmælisboði (var allavega tilhöfð í nælonsokkabuxum) og skoðar augað á mér betur. Í þetta skipti sagði hún að þetta gæti nú verið eitthvað annað en vírus og hringir í sérfræðing sem vildi svo sjá mig strax næsta morgun. Uppi varð mikill fótur og fit þar sem allir héldu að um "tumor" eða æxli væri um að ræða og dramað á hæsta stigi. Enda ekki annað hægt þegar elsku besta fjölskyldan manns er hinum megin á hnettinum. Var svo mætt klukkan hálf 10 til sérfræðingsins í morgun sem greindi mig með bólgur aftan við augu og ég var sett á sterkan steraskammt. Bólgurnar ættu að hverfa fljótlega og ég ætti að vera orðin 100% góð eftir nokkra daga. Ég er strax farin að finna mun og t.a.m. var nóttin í nótt fyrsta nóttin án verkja og hræðilegra kvala í 10 daga!!!
Þetta þarf samt ekki að þýða að málið sé dautt en það eru miklar líkur á því. Þó eru þessi steralyf ekkert grín og búast má við einhverjum breytingum á skapi mínu og lífi næsta mánuð!
lifið heil

<< Home