Allir dagar í mínu lífi eru sunnudagar
jæja þá er ég ss. komin heim fyrir fullt og allt. á pantaðan tíma hjá einhverjum tveimur læknum á morgun svo þá kemur kannski eitthvað meira í ljós. svo á ég líka tíma í klippingu á sama tíma sem mér veitir heldur ekkert af!
það var rosa gott að koma heim og hitta alla vinina. fór á mugison tónleika á nasa á föstudagskvöldinu og kíkti aðeins út á lífið í gær með önnu hlín - ég verð bara að segja það að ég sakna djammsins í new york aaaaðeins of mikið! hélt samt uppi heiðrinum og náði að láta bjóða mér uppá einn drykk. fékk svo "heimþrá" þegar ég hitti strák frá Manhattan og annan frá San Fransisco í röðinni.
Hef ekkert að segja, set inn myndir frá síðustu dögunum í New York fljótlega!

<< Home